Þá er mikilli fótbolta helgi að ljúka.
Síðasta föstudag komu Nonni, bróðir pabba, synir og tengdasonur hingað út til að skella sér á völlinn og sjá Chelsea taka á móti Liverpool. Það gekk nú ekki svo vel fyrir þá að komast hingað, þar sem eins og við er að búast af klakanum var brjálað veður og komust þeir ekki í morgun flugið á föstudaginn. En þeim tókst með miklu harðræði að brjótast suður yfir heiðar og ná síðdegisvélinni út og voru lentir 10 um kvöldið.
Á laugardaginn hitti ég þá svo á hótelinu sem þeir dvöldu á í Angel. Þar skildust leiðir, við Nonni fórum á Borough markaðinn en Björn Ingi, Gummi og Jói fóru í verslunarleiðangur á Oxford stræti.
Eftir að við Nonni höfðum smakkað á allskonar góðgæti á markaðnum héldum við niður í bæ til að hitta strákana. Á leiðinni lét Nonni loksins drauminn rætast og keypti sér nýja myndavél, Pentax K10D. Eftir að hafa aðeins sest niður yfir ölkollu var ákveðið að leita sér að stað til að borða á og enduðum við á mjög skemmtilegum kóreskum stað sem heitir Koba, þar sem maturinn er allur eldaður fyrir framan mann á gashellu sem er í borðunum.
Á sunnudeginum var svo haldið á völlinn að sjá Chelse taka á móti Liverpool. Eins og alltaf er nú gaman að fara á völlinn, en mikið óskaplega var þetta nú daufur leikur.
Þeir flugu svo heim aftur á mánudeginum, en þá fór ég hinsvegar um kvöldið að sjá Arsenal taka á móti Blackburn á Emirates leikvanginum með Gauta sem vinnur með mér. Það verður nú að segjast að Emirate völlurinn er sá langflottasti hérna í Englandi fyrir utan Wembley kannski. Þessi leikur var mun skemmtilegri á að horfa.
Þetta er í þriðja sinn sem ég fer á Arsenal leik, og hefur boðist oftar. Kærasta vinnufélaga míns er nefnilega með hlut í ársmiða á Arsenal leiki, en þar sem hún er að vinna í Afríku þá fæ ég að fara á þá leiki sem enginn kemst á, mjög hentugt fyrirkomulag.
En maður kemst því miður ekki alltaf. Mér býðst t.d. að fara að sjá Arsenal spila á móti AC Milan næsta miðvikudag en kemst því miður ekki þar sem ég verð ekki í London.
Ég mun svo skella inn myndum frá leikjunum við tækifærið á myndasíðuna.
View Comments
Við Finnur skelltum okkur á mánudaginn að sjá Sweeney Todd sem er nýjasta mynd Tim Burtons. Og með sömu leikurum og venjulega hjá honum, það er Johnny Depp og Helena Bonham Carter (sem vill svo skemmtilega til að er frænka hans Theos sem vinnur með okkur).
Þetta er söngvamynd byggð á söngleik af Broadway.
Það fer sko ekkert á milli mála að þetta er Tim Burton mynd, mjög drungalegt gothic þema í myndinni og við skulum segja að blóðið fær að fljóta í ómældu magni.
En alla veganna þá mæli ég eindregið með þessari mynd.
View Comments
Það er nú að verða smá skammarlegt hvað er langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna á Bertmann, en svona er þetta bara. En ætli sé ekki best að reyna að bæta eitthvað úr því á nýju ári.
Ég veit að fyrir frónverja þá mundi það kannski hljóma einkennilega að fara í vorhreingerningu nú í enda janúar í miðju óveðrinu. En hérna í London er komið vor í loftið, hitinn kominn upp undir 15 gráður á daginn og fuglarnir farnir að syngja. Þannig að þá var ekkert að gera annað en að drífa í þessu og nota sunnudaginn í allsherjar þrif. Ótrúlegt hvað safnast af ryki í litla íbúð.
Svo er Sindra og Sollu boðið í sunnudags roast í kvöld, þannig að þetta verður hinn besti dagur bara.
Annað sem hefur verið brallað síðustu daga er að á föstudaginn hitti ég Birnu frænku, Eddu vinkonu hennar og systur Eddu og fengum okkur að borða, ekki á hverjum degi sem Birna frænka er í borg Betu.
Á fimmtudaginn fórum við Finnur á tónleika með Heavy Trash (enn og aftur) og skemmtum okkur konunglega. Tónleikarnir voru haldnir í litlum klúbb á Oxford street sem heitir Club 100. Skrítinn staður að því leiti að það er stærðarinnar súla fyrir miðju sviði svo sem einn metra frá því, þannig að þeir sem ekki voru alveg upp við sviðið þurftu að ákveða sig hvorn helminginn af hljómsveitinni þeir vildu horfa á. En hljóðið var alveg eins og það gerist best á svona stöðum, ekki eins og á The Spitz, þar sem hljóðið var bara einn veggur af hávaða.
View Comments
Jæja, loksins loksins setti ég inn myndir frá fertugs afmæli Sigrúnar systur, sem var haldið 5. jan í safnaðarheimilinu á Dalvík.
Eins setti ég inn myndir frá öðrum í jólum boði hjá Jóa og Helgu.
Og loks myndir frá gamlárskvöldi á Dalvík.
View Comments
Ég var að setja inn myndir frá aðfangadagskvöldi í Hörpulundinum.
Eins setti ég inn nokkrar myndir héðan frá Akureyri sem ég tók í dag.
View Comments
Ég er búinn að setja inn 2 ný mynda albúm.
Fyrst setti ég inn myndir frá litlu jólunum í vinnunni og síðan nokkrar myndir frá JavaPolis ráðstefnunni í Andverpen sem við fórum á í síðustu viku.
View Comments
Við Ash vinnufélagi vorum að klára að gera grundvallar breytingar á myndaalbúminu á Bertmann þar sem margir dyggir lesendur Bertmanns kvörtuðu yfir aðgengi að myndunum, nenntu ekki alltaf að vera að fara fram og til baka.
Núna skiptist það upp í atburði með mynd við hvern atburð, og þegar er klikkað á atburðinn birtast bara myndir sem við eiga. Þær eru núna raðaðar í rétta röð svo að fyrsta myndin er fyrst en ekki síðust eins og áður. Og eins er núna hægt að klikka á "Play" og þá birtast þær sjálfkrafa í röð, ný mynd á 7 sekúndu fresti.
Njótið.
View Comments
Við vorum að koma heim í hús úr rúnti dagsins. Fyrst var haldið til Carcassonne þar sem við skoðuðum miðalda kastala, þann eina í heiminum sem enn er til að fullu að því er Oli segir.
Eftir að hafa skoðað kastalann og borðað hádegismat þar í kastalanum, var ákveðið að halda áleiðis heim, en eftir hinum ýmsustu sveita vegum, þannig að í stað þess að vera um 30 mín eins og við vorum til Carcassonne vorum við líklega 2 tíma á leiðinni. En það þýddi líka að við sáum ýmislegt sem við annars hefðum ekki séð.
Þegar við komum aftur til Limoux ákváðum við að skella okkur í vínsmökkun hjá aðal framleiðandanum á svæðinu Sieurd'Arques.
Á leiðinni heim var svo komið við hjá slátraranum og keypt heil anda lifur sem kom úr önd sem var slátrað fyrr í dag, ferskleiki það.
View Comments
Eins og sunnudagurinn fór þriðjudagurinn að mestu í að gera sem minnst. Helstu afrek dagsins var göngutúr um hæðirnar hérna fyrir ofan þorpið sem við erum í.
View Comments
Við ákvæðum að það væri gaman að kíkja á markaðinn í Mirepoix, það eru markaðir á mismunandi dögum í mismunandi bæjum hérna í grenndinni.
Eftir að hafa skoðað okkur um í smá stund ákváðum við að fá okkur hádegismat á veitingar stað við markaðstorgið.
Þegar við komum út eftir matinn og kaffi þá vara gjörsamlega búið að pakka öllum markaðnum inn í bíla og keyra burt með markaðinn, mjög skrýtin tilfinning þar sem torgið hafði verið fullt rétt áður.
Til að fara nú ekki sömu leið heim aftur var ákveðið að halda suður á leið í átt að vatni sem heitir Barrage de Montbel. Á leiðinni rákumst við á eins og 2 kastala og ýmislegt fleira áhugavert, en þar sem við erum nú ekki akkúrat á há ferðamanna tímanum var allt harðlæst og ekki aðgengilegt.
Á leiðinni til baka var stoppað í Villelongue-d'Aude, þar sem foreldrar Ola áttu lítið sumarhús áður en þau keyptu það sem við erum í núna.
View Comments
Þar sem við erum í landi með kaþólskum sið var ákveðið að halda sunnudaginn heilagann og gera ekki neitt.
Helsti viðburður dagsins var þegar Oli eldaði Cassoulet að hætti suður frakka, og ummmmmm var það gott.
Hérna er hægt að lesa um þennan fræga rétt.
View Comments
Mikið er nú gott að vakna upp, horfa út í loftið í smá stund og snúa sér svo á hina hliðina vitandi að maður er í fríi.
Það er ekkert planað fyrir daginn, frekar en aðra daga, eins og það á að vera í frí. En í gær eftir að taskan mín kom loksins ákváðum við að fara í smá bíltúr um nágrennið. Hérna er hægt að sjá hvar við erum.
Haustlitirnir eru upp á sitt besta eins og hægt er að sjá á myndunum (þegar þær koma inn) og eins eru öll litlu þorpin hérna mjög sjarmerandi og gaman að þræða, eins og ég sagði við Ola í gær þá mundi maður helst vilja stoppa á 5 metra milli bili og taka myndir, en þá kæmumst við nú lítið áfram.
Fyrst var haldið til Castelreng þaðan til Saint-Sernin og svo til Bouriége. Þá tók við smá hringa vitleysa þar sem við fórum til Conihac-de-la-Montagne síðan til La Serpent og enduðum svo aftur í Bouriége, sem alls ekki stóð til. Þannig að þá var ekkert annað að gera en að snúa við og fara aftur til La Serpent og þaðan svo í gegnum Antugnac til Couiza.
Þar tókst okkur á mjög eftirminnilegan hátt að gera ferðina mun dýrari en til stóð með því að reyna að fara yfir þrönga brú með þeim afleiðingum að við beygluðum og skröpuðum máininguna af bílaleigu bílnum farþegamegin, ekki gott. En hvað um það, þýðir ekkert að fást um það fyrr en við skilum bílnum.
Nú var haldið til Limoux sem er næsti stóri bær við þar sem við erum til að versla í kvöldmatinn. Í matinn var kálfa róst, skolað niður með rauðvíni að sjálfsögðu.
View Comments
Um miðjan dag í gær kom sendill hingað með töskuna mína, þannig að ég er búinn að lesa inn myndirnar sem ég hef þegar tekið. Þið skoðað myndirnar á Bertmann fljótlega eða þegar Dragan vinnufélagi er búinn að endurræsa DAPS vélina (DAPS vinnur myndirnar til birtingar á vefnum hjá mér) og mun ég svo bæta inn fleiri myndum í kvöld eða á morgun.
View Comments
Föstudagurinn var mikill menningar dagur hjá okkur, eftir sturtu, morgunmat og smá Tinna lestur var haldið að skoða djásnið hennar Betu.
Fórum út á stoppistöð og tókum strætó númer 67 alla leið á enda stöð sem er Algate og töltum þaðan niður að kastalanum. Þegar inn var komið tók við mjög skemmtilegur og fróðlegur kynnis túr með einum af bjórfótunum (beefeater). Næst var farið og skoðað djásnið, eða eins og bjórfóturinn kallaði það "Blingið".
Eftir að hafa kíkt inn í ýmis hús og söfn og allar túrista búðir á svæðinu var svengdin farin að segja til sín og farið að huga að mat. Við ákváðum að fá okkur frekar að borða í Covent Garden frekar en í City þannig að við hoppuðum upp í næsta leigubíl og brunuðum af stað.
Eftir svo sem 1 - 2 búðir var farið að leita að veitingar stað og ákváðum við að fara á elsta veitingarstað í London, sem Finnur benti mér á. Staðurinn heitir Rules og bíður upp á hefðbundinn enskan mat ásamt villibráð. Þetta er frábær staður og vissara er að bóka borð, en þar sem við vorum þarna kl 4 gátum við gengið inn.
Þá var komið að því að kíkja enn frekar á menninguna og fórum við að sjá söngleikinn Kabarett. Það var mjög skemmtilegt, dálítið öðruvísi, fólk í mismiklum klæðum eða engum. En stólarnir í leikhúsinu fá samt falleinkunn hjá mér, ég gat ekki beðið eftir að söngleiknum lyki til að geta staðið upp svo óþægilegir voru stólarnir.
View Comments
Þá eru Sigrún og Ómar farinn aftur heim í kuldann. Þau komu hingað til London miðvikudagskvöldið í síðustu viku, voru að nota sér jólagjöfina frá því í fyrra.
Þau voru mætt til mín um ellefu leitið um kvöldið og var boðið upp á franskan kjúkling að hætti hússins ásamt 2 góðum flöskum af Margux rauðvíni.
Eins og vera ber þegar maður er í fríi vorum við ekkert að rífa okkur upp snemma á fimmtudeginum. Þegar við loksins komumst úr húsi var haldið til Greenwich eftir ýmsum krókaleiðum, þar sem við skoðuðum okkur um á tímalínunni og kíktum í búðir.
Eftir röltið var maginn farinn að láta vita af sér þannig að við drifum okkur inn á San Miguel Tapas Bar & Restaurant sem ég hafði áður borðað á með Tryggva og Finn. Að venju þá báðum við þjóninn að velja fyrir okkur réttina og það klikkaði ekki, mæli eindregið með því. Matnum var svo skolað niður með könnu af Sangria.
Þá var okkur ekki til setuna boðið að drífa okkur á tónaleika með Prince í O2 höllinni. Þetta voru þriðju tónleikar mínir að sjá Prince í O2 höllinni en hann er um þessar mundir að halda 21 tónleika í höllinni. O2 höllin er 20.000 manna tónleikastaður inni í Millenium Dome. Þetta voru mjög skemmtilegir tónleikar, mikil stemning og mikið uppklapp.
Eftir tónleikana var svo troðist ofan í neðanjarðar lestina og haldið heim á leið eftir góðan dag í London.
View Comments
Jæja, þá er maður orðinn 37 ára, veit ekki alveg hvar þetta endar. Vonandi í hárri elli, hver veit. Ég hef aldrei skilið þessa viðkvæmni hjá fólki sem segir ekki hvað það er gamalt, sérstaklega kvenfólk. Hérna úti er það meiriháttar móðgun að spyrja kvenmann um aldur.
Og alltaf fjölgar gráu hárunum með hverju árinu sem líður, maður kemst víst ekki hjá því í þessari fjölskyldu.
Í afmælisgjöf frá vinnufélögunum fékk ég inneign hjá Amazon og bókina 300 Beers to Try Before You Die. Eftir vinnu verður svo haldi á The Princess sem er pöbb hérna neðar í götunni til að fá sér í tánna með vinnufélögunum.
View Comments
Síðasta laugardag var hið árlega Vyre grill hjá Andy og Ruth.
Ég setti inn nokkrar myndir frá samkomunni, misgáfulegar.
View Comments
Nú er farið að styttast í að það komi út nýr diskur frá einni af minni uppáhalds hljómsveitum, Heavy Trash. Kemur út um miðjan september, en fyrir þá sem ekki geta beðið er hægt að hlusta á diskinn hérna á netinu, bara að klikka á bláa takkann í miðjunni.
View Comments
Við Tryggvi fórum í sunnudagsbíltúr suður fyrir Louisville þar sem þeir búa til Makers Mark bourbon viskíið. Þeir bjóða upp á ókeypis sýningartúra um svæðið og fræða mann á því hvernig á að búa til besta viskí í heimi, alla veganna að þeirra mati;) Veit allavegana að Finnur er ekki alveg sammála.
Þetta var mjög áhugavert og ekki skemmdi veðrið heldur fyrir, glampandi sól og um 30 gráðu hiti.
Ég keypti mér meira að segja ó innsiglaða flösku og innsiglaði með vaxi, svaka stuð.
Mæli eindregið með þessum túr næst þegar þið eigið leið um Loretto Kentucky.
View Comments
DABS serverinn virðist vera óvirkur núna þannig að það verða ekki til smámyndir eins og er, þarf að redda þessu á morgun.
View Comments
Í gær laugardag fórum við Tryggvi og Jonna vinkona hans út að borða á þýskan veitingarstað, fékk mér að sjálfsögðu Vínar snitsel og súrkál ásamt dökkum hveitibjór.
Eftir það var farið á uppistands klúbb sem heitir Comedy Caravan og sáum þar Etta May, kona sem gerir út á að vera hvítt hyski (trailer trash)
View Comments
Við komum til Louisville í gærdag, var latur og nennti ekki að setja inn færslu. En alla veganna er "road tripinu" lokið.
Í gær keyrðum við síðasta spölinn frá Chattanooga til Louisville með smá stoppi í Nashville. Rákumst að vísu ekki á neina kúreka japlandi á skroi heldur bara á aðra túrista.
Samtals akstur á þessu 5 daga ferðalagi okkar var um 4100 kílómetrar! Ekki svo lítið það.
En hápunktur ferðarinnar var án vafa Savannah, ótrúlega fallegur staður, mikil saga og mjög mikil evrópsk nílendu áhrif. Eins var mjög gaman að koma út á sandrifin fyrir utan Norður Karólínu.
Svo verður maður nú að minnast á þegar við keyrðum næstum á skjaldböku sem var að rölta yfir veginn nálægt Stumpy Point Bay, þetta var ekkert smá kvikindi, örugglega 40 - 50 sentímetrar á lengd.
Lágpunkturinn var aftur á móti slys sem við urðum vitni að á leið okkar frá Savannah til Atlanta. Við vorum bara á okkar vanalega 78 mílna hraða er við keyrðum inn í mikið rigningar belti, hitinn fyrir utan bílinn lækkaði úr 102 gráðum á farenhight niður í 70 gráður á um 15 mínútum, held það séu um 21 gráða á celsius. Það gerði svo rosalega rigningu að ekkert sást út þannig að við færðum okkur yfir á hægri akreinina á veginum og hægðum á okkur niður í um 30 mílu hraða. Þá brunuðu fram úr okkur 2 bílar á um 50 til 60 mílna hraða, við skildum ekkert í hvað þeir voru að gera á þeim hraða miðað við aðstæður. Eftir um 5 mínútur keyrðum við fram á þá þar sem seinni bíllinn var stopp út í vega kantinum en fremri bíllinn var aftur á móti kominn útaf og hafið farið niður brekkur og endað á tré, og rauk úr bílnum, við höldum að það hafi verið kviknað í honum, sáum það ekki alveg. Við vitum svo sem ekki alveg hvað gerðist þar sem við gátum ekki stoppað með 18 hjóla flutningabíl fyrir framan og aftan okkur sem slógu ekkert af.
En nú verðu lífinu bara tekið með ró og slappað af þar til ég flýg heim á mánudagskvöld, lendi í London um 8 leitið að morgni þriðjudags.
View Comments
Í morgun fórum við í skoðunarferð um Savannah. Þetta er alveg ótrúlega falleg borg, mjög ólík öllum borgum í Bandaríkjunum sem ég hef komið til.
Þetta er ein af elstu borgum Bandaríkjanna og hefur verið mikið lagt í það síðustu árin að endurbyggja og viðhalda gömlum húsum.
Ég mæli eindregið með því að heimsækja hana ef þið hafið tækifæri á því. En ef þið eruð á ferðinni í júlí eins og við þá er eins gott að hafa með sér stuttbuxur og stuttermabol, í dag var t.d. um 38 stiga hiti.
Eftir að hafa skoðað Savannah hátt og lágt var lagt í hann og brunað upp eftir Georgíu endilangri eins og hægt er að sjá hér.
View Comments
Í morgun þegar við vorum lokins komnir af stað, það tók mig 2 tíma að vakna, byrjuðum við á að renna yfir í Beaufort sem er næsti bær við þar sem við gistum. Var ákveðið að fara á alvöru amerískan morgunverðar stað eins og maður sér í kvikmyndunum, þjónustustúlkurnar labbandi um með kaffi könnuna í annarri og allt. Ég fékk mér pönnukökur með bláberjasultu og hlynsírópi á meðan Tryggvi fékk sér hefðbundnari morgun mat með eggjum, beikoni og slíku. Verð nú að segja að það er gaman að prófa þetta en ég mundi nú ekki vilja borða þetta á hverjum morgni.
Næst var haldið til Pine Knoll Shore sem er enn eitt sandrifið, þar sem við skelltum okkur í sædýrasafn.
Við vorum búnir að ákveða að slá þessu öllu bara upp í kæruleysi og skella okkur til Savannah í Georgíu fylki. Þannig að við eyddum næstu 6 tímunum í akstur. Brunuðum niður Norður Karólínu, þvert yfir Suður Karólínu og svo loks inn í Georgíu.
Savannah er frábær borg til að heimsækja, mjög mikið af gömlum húsum, menningu og skemmtilegt mannlíf. En úff hvað er heitt hérna. Vorum að rölta heim núna um 11 í kvöld eftir að hafa borðað frábærann Wolffish og skoðuðum okkur aðeins um, og það var ekki þurr þráður á mér er við komum upp á hótel. Held að það sé um 30- gráður og 90%+ raki.
En þar sem við vorum mikið á vegunum í dag tók ég ekki mikið af myndum, set frekar bara inn myndir á morgun.
En hérna er svo leiðin sem við fórum í dag.
View Comments
Í dag byrjuðum við á að fara út að Cape Hatteras vitanum og upp í hann. Mjög fínt útsýni, en verst hvað er mikið mistur hérna, þannig að maður sá ekki eins langt og maður vildi og eins eru myndirnar ekki mjög skýrar, en hvað um það.
Næst var farið að minnismerki um Wright bræður þar sem fyrsta flug í heiminum var framkvæmt fyrir 104 árum síðan.
Við fengum okkur að borða á Dirty Dicks, Tryggvi krabba kjöt og ég mér einhvern fisk með krabbakökum ofaná.
Síðan var okkur ekki til setuna boðið og brunuðum við af stað niður eftir strönd Norður Karólínu, meðal annars í gegnum aligator þjóðgarð og fleira. Og hérna er svo leiðin sem við fórum.
View Comments
Þar sem það var ekkert internet á mótelinu sem við gistum á síðustu nótt þá er þessi færsla og myndir degi á eftir áætlun, en hérna kemur það alla veganna.
Mánudagurinn fór nú að mestu í akstur yfir þvera Norður Karólínu eins og hægt er að sjá hér.
Stoppuðum í Edenton og röltum um og fengum okkur að borða áður en haldið var út á rifin fyrir utan ströndina kölluð The Outer Banks.
Þegar við komum út á rifin ákvæðum við að keyra niður eftir þeim og skoða okkur um. Það verður nú að segjast að þetta er ólíkt öllu sem ég hef séð. Nokkurra tuga langar strendur af fullkonum hvítum ströndum Atlandshafs megin, en meiri gróður og lygn sjór/vatn hinum megin við rifin. Þetta er mikill ferðamanna staður og mikið um að vera fyrir alla fjölskylduna þarna.
Húsin eru flest byggð á súlum þar sem sjórinn virðist ganga yfir reglulega, en þau eru nú engin smá smíði, flest þriggja til fjögurra hæða timburhús ofan á súlunum.
Við enduðum svo daginn á að fá okkur að borða á Teach's.
Veðrið hérna er um 30 gráður og 80 - 90 gráðu raki. Maður fer á flot um leið og maður hreifir sig hið minnsta, en á meðan maður gerir ekkert er þetta voðalega þægilegt.
View Comments
Þá erum við búnir með fyrsta daginn á ferða lagi okkar um mið austur Bandaríkin. Lögðum í hann rúmlega 8 í morgun og brunuðum til 75, gegnum Lexington og London í átt að Knoxville.
Eftir smá misskilning á kortinu var snúið við í Alcoa og stefnt á Great Smoky Mountains þjóðgarðinn. Við keyrðum þar upp eftir gili með lignri á í þar sem fólk skemmti sér við að láta sig fljóta á slöngum niður eftir ánni í góða veðrinu. Við héldum svo áfram upp á hæsta punktinn á fjallgarðinum, síðasta spölinn þurfti að labba upp bratta brekku að útsýnispalli.
Þegar niður úr þjóðgarðinum var komið keyrðum við í gegnum verndarsvæði Cherokee indíána.
Svo var ekkert annað að gera en að gefa bara í og stefna í austur átt fyrir nóttina. Núna erum við svo búnir að koma okkur fyrir á móteli í Winston-Salem.
Hérna getið þið svo séð leiðina sem við fórum í dag.
View Comments
Var að skella inn nokkrum myndum sem ég tók í dag.
Eftir að Tryggvi skreið á lappir um 10 leitið í morgun fórum við að útrétta ýmislegt (hann fór að vísu að sofa kl 7 í morgun þar sem hann var að koma af næturvakt).
Fyrsta verk var að sækja bílaleigubíl sem við ætlum að nota næstu daga í ferðalagi okkar. Að því loknu þvældumst við út um allt í Louisville og nágrenni og skoðuðum ýmislegt áhugavert. Eins og sést kannski á myndunum þá er mjög fallegt hérna.
Á morgun verður svo farið af stað í birtingu og haldið í hina miklu Ameríku reisu 2007.
View Comments
Ég sit hér heima hjá Tryggva kl 1.18 á staðartíma. Dálítið vankaður eftir að hafa vakað um 22 tíma í gær, en maður verður að reyna að aðlaga sig að tímanum svo að maður verði ekki bara vakandi á næturnar og sofandi á daginn.
Ferðin gekk mjög vel fyrir sig. Dagurinn byrjaði kl 5:45 með sturtu og slíku, tók síðan strætó niður á London Bridge stöðina þar sem ég tók lestina á Gatwick flugvöllinn, mjög einfalt og þægilegt allt saman.
Flugvélin átti að fara af stað kl 10:10 en frestaðist um rúman hálftíma vegna bilunar, en flugstjórinn lofaði að gefa bara í yfir pollinn til að vinna upp tíma tapið.
Flugferðin var nú að mestu viðburðarlítil, en alveg helvíti er nú leiðinlegt að hanga í flugvél í um 9 klukkustundir. Áður en við gátum þó yfirgefið vélina í Cincinnati þurftum að bíða á meðan sjúkraliðar komu í vélina til að sinna veikum farþega.
Tryggvi tók svo á móti mér á flugvellinum og við brunuðum bara beint heim til hans til Louisville sem er um eins og hálfs tíma akstur.
Eftir að hafa hent töskunum inn og slíkt fórum við svo á rúntinn á 400 hesta Ford Mustang SVT Cobra kagganum hans. Keyrðum um í smá tíma og svo var ákveðið að fá sér að borða alvöru amerískt grill á Famous Dave's, mjög gott.
Ég hef nú ekki ennþá tekið neinar myndir þannig að þær verða bara að koma seinna þegar við leggjumst í ferðalag.
View Comments
Þá er bara að koma að því. Ameríku ferðin að hefjast.
Ég flýg í fyrramálið kl 10:10 til Cincinnati þar sem Tryggvi mun sækja mig á flugvölinn.
Flýg beint með Delta Airlines alla leið, kostaði að vísu ansi mikið að fara beint, en ég nennti bara ekki að millilenda einhverstaðar og lengja ferðatímann um 3 til 4 tíma, fannst það bara ekki þess virði fyrir nokkur pund.
Ég mun svo reyna að greina hérna frá hápunktum ferðarinnar ásamt því að setja inn myndir eftir því sem við verður komið. Tek með mér að sjálfsögðu myndavélina mína og makka bókina og reyni að stelast í internet þar sem það er hægt.
Næsta færsla verður svo frá landi frelsisins (að eigin sögn alla veganna).
View Comments
Jæja, loksins er ég búinn að setja inn myndir frá 17. júní fagnaðinum okkar.
Við fórum semsagt í grill til Hjartar. Gauti var þegar mættur með íslenskan lambahrygg og grænar Ora baunir. Gerist ekki betra.
Við Finnur mættum með grænmeti og ýmsar tegundir af bjór og rauðvín til að hafa með.
Stuttu seinna mættu svo Sindri og Solla, og hyggnum var hesthúsað af bestu list.
Myndirnar eru nú misgáfulegar, en eftir mikla ritskoðun er þetta það sem helst er birtingar hæft af þeim.
View Comments
Einn af stærri viðskiptavinum Vyre er Diageo sem er stærsti áfengisframleiðandi í heiminum í dag, eftir því sem ég best veit.
Síðustu dagar hafa farið hjá okkur í að uppfæra kerfið hjá þeim upp í nýjustu útgáfuna af Vyre. Og þar sem þetta er nú fyrsti kúnninn í Vyre 4 kerfinu þá var nú að mörgu að huga við uppfærsluna.
En þar sem Vyre er notað til að sjá um þeirra auglýsingar og vörumerki þá get ég því miður ekki vísað á þennan vef hér þar sem hann er lokaður fyrir utanaðkomandi.
En núna er þetta allt komið upp og keyrir svona glimrandi vel að til að þakka fyrir sig kom verkefnastjórinn hjá Diageo, með eftir farandi:
Þessi Guinness Surger er græja til að fuðra upp í Guinnessinum þegar hann er kominn í glasið til að hann verði eins og honum hafi verið helt í glasið á bar. Það má svo sem deila um hvort hann verði alveg eins, en þetta hefur samt ákveðið skemmtana gildi eins hægt er að sjá hér.
View Comments
Þá er 17. júní genginn í garð með 20 stiga hita og sól í heiði.
Okkur Finn er boðið í grill hjá Hirti og Lindsay, sem bæði vinna með okkur. Við ætlum að hoppa upp í strætó og fara á Old Spitalfields Market og ná okkur í ket af feitum sauð og eitthvað kál með til að henda á grillið, það er ketinu.
Góð afsökun fyrir því að komast út úr húsi og gera eitthvað skemmtilegt á sautjándann, ekki eins og tjallarnir haldi mikið upp á daginn og íslendingarnir í London héldu jú upp á daginn í gær.
En annars tók ég eftir því að ég hef bara fengið töluverðan lit í París, alla veganna miðað við að það horfa á iljarnar á mér, ég rölti nefnilega um í sandölum og núna líta þær út eins og sebrahestar, vel röndóttar.
View Comments
Finnst engum nema mér það skrítið að vera með 17. júní hátíðarhöld 16. júní?
Ekki eins og sá 17. lendi á virkum degi.
Ég bara skil ekki þetta íslendingafélag hérna í London. Og hvað er með þetta eilífa messustand, er virkilega ekki hægt að gera neitt nema að hafa messu fyrst?
View Comments
Síðasti dagurinn er nú að kvöldi kominn.
Í dag fórum við að skoða Sacré Coeur, sem er kirkja sem er byggð á hæstu hæðinni í París, með frábært útsýni yfir borgina. Eina vandamálið var að það var ansi mikið mistur í dag þannig að maður sá kannski ekki alveg eins langt og maður vildi. Eins eru myndirnar ekki ekki eins og best væri, en engu að síður mjög gaman að fara þarna upp.
Næst röltum við niður hæðina og um göturnar í kring að skoða mannlífið, en það var nú full mikið af ferðamönnum þarna fyrir okkar þannig að við settum stefnuna út úr mestu þvögunni og fundum okkur veitingarstað til að borða á. Það var nú töluvert mál þar sem eldhúsin á næstum öllum stöðunum voru lokuð, þar sem við vorum akkúrat á milli hádegismatar og kvöldmatar.
Síðan var stefnan sett á miðborgina, í átt að íbúðinni. Þar rákumst við á Lafayette Maison sem er risastór verslun sem selur allt. Þar keypti ég mér fína Laguiole steikarhnífa frá Claude Dozorme.
Á leiðinni heim rákumst við svo á Illy kaffihús og ákváðum að kíkja inn. Við pöntuðum okkur Cappuccino og ég er ekki frá því að þetta sé besta kaffi sem ég hef fengið, allavegana í langan tíma. Það er óhætt að segja að ítalarnir kunna að búa til kaffi.
Nú er ekkert eftir annað en að taka aðeins til eftir okkur og koma sér í háttinn þar sem lestin fer eldsnemma í fyrramálið til að geta komist í vinnu á skikkanlegum tíma.
Þar með líkur beinni útsendingu frá París, en það er nokkuð ljóst að hingað mun ég koma aftur.
Au revior
View Comments
Við vorum að klára að borða þvílíka herramanns máltíð að hætti Ola að ég varð bara að setja inn nokkrar myndir af eldamenskunni.
Þetta voru semsagt tveir unghanar sem fórnuðu sér í þennan rétt. Kjötið á þeim var vel gult, sem gefur víst til kynna að þeir hafi verið aldir á korni og engu öðru.
En eldamennskan gat nú ekki verið auðveldari, ólífuolía á pönnuna, nokkrir hvítlauksgeirar. Kjúllinn því næst létt brúnaður á pönnunni með hvítlauknum. Þessu svo öllu skellt í eldfast fat ásamt góðum helling af hvítvíni (Oli ráðlagði þó frekar þurft sherrí), og svo handfylli af steinselju yfir, salt og pipar.
Volla.
Þessu er svo bara skell inn í ofn á passlegum hita með álpappír yfir og látið malla í 40-60 mínútur. Þá er álpappírinn fjarlægður og passlegt að byrja að sjóða kartöflurnar.
Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er ekkert eftir nema að stappa þær og bera góðgætið fram með góðri flösku af Margaux.
Gerist ekki betra.
Ef þið viljið fá betri lýsingu frá fagmanni þá mun Oli setja inn uppskriftina á vefinn sinn fljótlega.
Endilega kíkið á myndirnar af eldamennskunni.
View Comments
Var að setja inn þó nokkrar nýjar myndir af mánudagsrölti okkar Ola. En mestum hluta dagsins var varið á Louvre við að taka í sig menninguna, ég held að við höfum örugglega komist yfir svona 5% af safninu er við urðum að gefast upp vegna of mikillar menningar.
En náðum alla veganna að sjá aðeins í hana Mónu Lísu. Fannst nú margt annað á safninu merkilegra en sú mynd, en hvað veit ég um listir.
View Comments
Sunnudagurinn byrjaði rólega, eins og vera ber á hvíldardeginum.
Röltum yfir í Jardin du Luxemburg garðinn og tókum í okkur stemninguna. Þaðan var haldið til norðurs í átt að Signu. Stoppuðum fyrir framan Notre Dame kirkjuna og virtum fyrir okkur, nenntum ekki inn í hana þar sem röðin til að komast inn var nokkur hundruð metrar.
Fyrir norðan ána var völt á milli hinna ýmsu safna og annarra merkra bygginga og götulífið skoðað.
Og ekki skemmir að veðrið hefur verið upp á sitt besta 25-27 stiga hiti og blíða.
Í kvöld mat fórum við á veitingar hús sem Ola var bent á að biði upp á mjög góðar steikur. Ég fékk mér að vísu ekki steik þar en bara annað mun betra í staðin. Í forrétt fékk ég mér snigla, sem voru ágætir, en í aðalrétt fékk ég andalæri steikt upp úr gæsafitu sem gjörsamlega bráðnaði upp í manni.
Annars minni ég bara á myndirnar, þær lýsa þessu mun betur en ég get með texta.
Eftir að við höfðum hent af okkur draslinu í íbúðinni var haldið út á lítið veitingar hús hérna neðar/ofar í götunni, Chez Germaine. Þetta er pínulítill staður með frekar einhæfan matseðil. Okkur leist best á það sama, sem var reykt síld í forrétt og svo létt steikt nautahakk baðað upp úr Arminaci, sem reyndist verða algjör snilld.
Að mat loknum röltum við okkur á kaffihús hinumegin við götuna og sátum þar nokkuð fram eftir, Frakkarnir loka ekki snemma eins og Bretar.
Laugardagurinn byrjaði svo ekki fyrr en um hádegi, en þannig eiga jú frí að vera. Við byrjuðum á því að skreppa í búðir til að eiga einhverjar byrgðir hérna í íbúðinni. Fyrst var farið í kjörbúðina til að fá það helsta, nokkrar vínflöskur, bjór, smá hana, grænmeti og jurtir. Þaðan var farið í bakaríið og svo endað í ostabúðinni og þvílíkt úrval af ostum.
Þegar búð var að ganga frá öllum kostinum var sest niður og borðaður þessi líka fíni morgunmatur.
Eftir morgunmatinn var svo loksins haldið út í skoðunarleiðangur um París. Við röltum að Effelturninum og þaðan yfir Signu og upp að Sigurboganum. Fórum nú ekki alveg að honum, lögðum ekki að hlaupa yfir 10 akreina hringtorg sem er í kringum hann, fórum frekar bara niður Champs-Élysées.
Eftir að hafa farið aftur í íbúðina í 2 tíma til að hvíla fætur og setja myndir á Bertmann var haldið á mjög góðan veitingarstað Aux Lyonnais sem við áttum bókað borð á kl 8:30.
Í forrétt fékk ég mér sveppa súpu/seiði með allskonar góðgæti í sem var mjög gott. Í aðalrétt fengum við okkur báðir kálfakjöt sem var alveg himneskt. Þessu var svo skolað niður með flösku af Cotes de Rhones-villages, Saint-Roch Lirac 2005.
Mæli með þessum stað ef þið eruð í París og langar í mjög góðan franskan mat, en það er öruggara að panta borð, allt var fullt þegar við vorum þarna.
Eftir matinn var svo rölt aðeins um til að koma meltinguna af stað áður en var haldið heim á leið.
View Comments
Jæja, þá er maður kominn í íbúðina og allt lítur alveg helvíti vel út verð nú að segja. Villtumst að vísu aðeins á leiðinni, fórum upp rangan stigagang, ekkert stórvægilegt, en skildum ekkert í því af hverju hurðin vildi ekki opnast.
En mikið óskaplega getur maður svitnað við það að koma stíga út úr loftkældri lest út í 25 stiga hita og mikinn raka og þaðan ofan í neðanjarðarlestina, með öllum þeim hita og raka sem þar er.
En hvað um það gaman að vera loksins kominn til Parísar til að skoða og ráfa um.
Meira um það síðar.....
Búinn að setja inn nokkrar myndir af ferðalaginu og úr íbúðinni.
View Comments
Jæja, nú er bara alveg að fara að koma að því að maður fari loksins til Parísar, alveg kominn tími á það.
Fer frá Waterloo stöðinni núna rétt rúmlega 3 á eftir og verð kominn til Parísar rétt fyrir 7 á staðartíma. Ég hef ákveðið að hér eftir þegar ég er að ferðast á þessar slóðir verður eingöngu ferðast með EuroStar lestinni, það er algjör snilldar ferðamáti. Maður þarf bara að vera mættur hálftíma fyrir brottför og þegar maður kemur á áfangastað labbar maður bara út á götur miðborgarinnar sem maður ferðaðist til. Engar lestarferðir út á flugvöll, klukkutíma innritunar raðir eða annað eins í öryggis hliðum.
Var að komast að því að það er þráðlaust net í íbúðinni sem við verðum í þannig að ég mun reyna að skrifa kannski eitthvað daglega um hvað hefur verið afrekað í útlöndunum og setja inn myndir í nýja myndasafnið mitt.
En hvað um það, næst á dagskrá er að taka strætó á Waterloo og svo bara að bruna í gegnum göngin.
View Comments
Bertmann er alltaf að batna, núna er komið myndaalbúm.
Til að sjá myndirnar þá er línkur í hausnum "Myndir".
Eins og er eru nú ekki margar eða merkilega myndir en þær eru:
- Nokkrar frá síðasta föstudegi þegar allir fóru á pöbbinn þar sem var rafmagnslaust í vinnunni og síðan var farið í 30 afmæli hjá honum Stuart Eccles sem var að vinna fyrir Sony.
- Myndir af hrefnukjöti, svona aðallega til að hrella samstarfsmennina.
- Ferð okkar Ola og Matts til íslands í fyrra.
- Ein mynd frá Nothingham, þar sem Jón Víðir bjó ásamt fjölskyldu í eitt ár
Ég mun svo hlaða inn fleiri myndum eftir því sem tíminn leifir.View Comments
Kannski ekki flugi, en alla vegana er ég á leiðinni til Parísar með Ola vinnufélaga mínum. Það vill svo skemmtilega til að foreldrar hans eiga nefnilega íbúð í hjarta Parísar.
Farið verður af stað eftir hádegi á föstudag með EuroStar og komið aftur eldsnemma á miðvikudags morgni (eldsnemma á minni klukku).
Það eru nú ekki komin nein plön, en það er einmitt eins og ferðlög eiga að vera, bara að óljósan lista í kollinum yfir það sem væri gaman að sjá, en ef það næst ekki þá nær það bara ekki lengra. Ég bara þoli ekki sumarfrí sem eru skipulögð niður í smæstu atriði, það er ekki frí í mínum huga.
En ef þið þarna úti vitið um eitthvað áhugavert að skoða þá endilega setjið inn athugasemd á greinina.
Ég mun svo vonandi fljótlega setja inn myndir úr ferðinni hérna á síðuna, en myndaalbúm er í vinnslu fyrir Bertmann.
Hérna eru myndir af íbúðinni sem við verðum í.
Smá viðbót hér, ef þið eruð staðkunn í París þá er hérna kort af því hvar íbúðin er í París.
View Comments
Jæja, þá er loksins komið að því að fara í almennilegt sumar frí, hef ekki tekið mér gott sumar frí síðan ég veit ekki hvenær en úr því verður bætt nú í sumar.
Ég er búinn að fjárfesta mér í miðum frá London Gatwick til Cincinnati í Amríkunni í miðjum júlí, þar sem ég ætla að heimsækja hann Tryggva vin minn sem býr í Louisville Kentucky. Alveg kominn tími á það, hef ekki komið til hans síðan 2000 með pabba og mömmu þegar Ameríku ferðin hin ógurlega var farin.
Plönin eru nú ennþá frekar frjálsleg, en höfum rætt að rúnta yfir á austurströndina t.d. til Virginia Beach og rúnta þar um eins og norður til Washington (verst að Birna frænka verður í Rússlandi akkúrat á þessum tíma).
Frekari ferðaplön verða færð hér inn um leið og eitthvað hefur verið ákveðið.
Góða helgi.
View CommentsÁ laugardaginn fór ég í heimsókn til Kambríu að hitta Bjarka og Bryndísi.
Byrjaði nú kannski ekki allt of vel þar sem ég horfði á eftir lestinni sem ég ætlaði að taka frá Liverpool Street stöðinni. Þannig að þá var ekki annað að gera en að kaupa sér kaffi og bíða eftir þeirri næstu.
Var kominn í sveitina um klukkan 14 og rölti heim til þeirra hjóna, þar sem þau búa rétta hjá lestarstöðinni. Ákveðið vara að fara og punta á ánni, en það er ekki hægt að punta nema hafa með sér helstu nauðþurftar eins og jarðaber, shushi, Kafa, brauð, franska pulsu og smá bjór til að skola kverkarnar. Síðan var haldið í skólann hennar Bryndísar sem hefur nokkra báta fyrir nemendur að leigja út. Þar hittum við íslenskt par sem Bryndís og Bjarki voru nýlega búin að kynnast og þau komu með á ánna.
Eftir að hafa puntað upp og niður ánna og rekist utan í fullt af öðrum bátum var haldið heim á leið með viðkomu í matvöru búð og eins kippt með nokkrum flöskum af eðal þrúgusafa. Síðan snaraði Bryndís fram svo sem einni veislu eins og henni einni er lagið.
Að mat loknum var haldið á tónleika með 15 manna hljómsveit sem spilar gríska neðanjarðar tónlist, ágætis skemmtun, kannski ekki sú hressasta tónlist sem ég hef hlustað á en mjög gaman að upplifa svona eitthvað allt annað en maður er vanur.
Síðan var haldið heim til Bjarka og Bryndísar og öll heimsins mál rædd fram eftir nóttu.
Sunnudagurinn byrjaði ekki mjög snemma, sem var gott. Ákveðið var að fara í Sunday Roast á hverfis barnum, Brindís hafði heyrt að það væri besta Sunday Roast í Kambríu, og ekki brást steikin væntingum.
Ég var svo samferða Bryndísi, Bjarka og vinkonum Bryndísar til London þar sem þau voru á leið á tónleika hérna á sunnudagskvöldinu.
View CommentsÍ gær fór ég ásamt Oli Matthews vinnufélaga mínum á tónleika með My Velvitines á The Lark in the park í Islington. Ágætis skemmtun bara.
Annars er það helst annað í fréttum hérna að núna er sumarið komið í London, tuttugu gráður plús plús næstu dagana, voða þægilegt.
View CommentsEkki hefur þetta nú byrjað vel hjá mér, loksins kominn á netið og ekkert gerist.
En þá er best að fara að bæta úr því og gera grein fyrir helstu atburðum síðustu daga.
Síðasta föstudag var haldið mikil gleði í vinnunni þar sem útgáfu 4.3 af Vyre Unify var fagnað vel og lengi af íslenskum hætti. Held að margir af samstarfsfélögunum skilji ekkert í úthaldi okkar íslendingana, en við erum smá saman að þjálfa upp þolið í þó nokkrum.
En það verður nú að viðurkennast að maður er nú ekki jafn ungur og maður var þannig að laugardeginum var að mestu varið í að gera akkúrat ekki neitt. En það er nú bara nauðsyn að gera af og til.
Ekkert var heldur planað fyrir sunnudaginn, en það átti nú allt eftir að breyttist.
Við Finnur komum okkur úr húsi svona um hádegi og fórum á British Museum, eitthvað sem er búið að vera á dagskránni síðan ég flutti hingað út. Það er nú ekki hægt að segja annað en Bretar hafa nú verið ansi duglegir að rupla og ræna fyrrum nýlendur sínar, og mikið óskaplega er til mikið af dóti frá fyrir löngu síðan. En ég verð nú að viðurkenna að ég hef bara takamarkað þol fyrir svona miklu af eld gömlu dóti. Mikið óskaplega finnst mér það nú sniðugt hjá tjallanum að hafa ókeypis inn á þessi helstu söfn sín, þá getur maður bara tekið þetta í áföngum án þess að þurfa að vera að eyða stórpeningum í þetta eða hafa samviskubit yfir að skoða ekki allt.
Þegar við vorum á leiðinni heim hringdi Kjartan í mig og bauð okkur Finn í mat til þeirra Gauta, en þeir búa rétta hjá okkur Finn. Þar var okkur boðið upp á þessa líka stórgóðu villibráð (hún var svo villt að enginn okkar var viss hvað þetta var nákvæmlega sem við vorum að borða).
Eftir matinn var svo gripið í spil og spilað upp á nokkur pund í Texas Holdem póker. Og það vildi líka svo vel til að þessi nokkur pund enduðu í mínum vasa, ekki verra.
Í kvöld fórum við Finnur, Sindri, Gauti og Kjartan svo á tónleika hérna neðar í götunni með Benna Hemm Hemm og Strórsveit Nix Nolte. Það verður nú að viðurkenna að úthaldið var ekki það mikið að við værum til enda, læt ógetið hvort það var vegna þreytu eða áhugaleysi á tónlistinni.
View CommentsEf einhver er að lesa þessi ósköp þá skal það tekið fram að vinna fer fram þessa dagana. Þannig að þetta verður væntanlega eitthvað að breytast.
En hvað um það, ætla að reyna að rumpa einhverju upp í dag, allavegana þannig að þetta verði boðlegt.
View CommentsHalló halló.
Þá er bara loksins komið að því að ég fari að tjá mig á netinu. Hef svo sem ekkert mikið að segja eins og er (frekar en venjulega) en ég mun reyna að setja inn eitthvað af fréttum og myndum af veru minni hérna í London í framtíðinni.
Albert
View Comments